Stranded

Salvör Gissurardóttir  september 2017

Stranded er námsleikur þar sem þátttakendur verða að vinna saman til að halda lífi.  Leikurinn er spilaður í vafra. Hægt er að spila leikinn í sameiningu  með bekk eða hópi.  Í leiknum hefur bekkurinn standað á óþekktri eyju og verður að læra að vinna saman til að  halda lífi.

Skjáskot af tölvuleiknum Stranded

Leikurinn miðar við að þátttakendur séu með nettengdar tölvur. Hver leikur tekur um 25 mínútur og í við leikslok fær hópurinn endurgjöf á því hversu góð liðsheildin er.

Einn spilari (t.d. kennari) býr til leik og hinir fara  inn í þann leik með því að gefa upp númer. Þegar allir eru komnir í leikinn þá getur sá sem býr til leikinn ýtt á „Start“ hnapp til að hefja leikinn.  Ef sá sem býr til leikinn fer út úr honum þá endar leikurinn.  Leikurinn er spilaður í 15 umferðir og hver leikur er um 25 mínútur. Hver umferð skiptist í tvo þætti,  verkhluta (action phase) og kosningahluta (voting phase).

Það eru margs konar staðir í Stranded. Flestir þessir staðir eru ókannaðir í byrjun leiks en í framvindu leiksins kanna spilarar nýja staði og komast að því hvað er á hverjum stað. Það eru 8 mismunandi tegundir af stöðum.

Vefslóð http://www.saarella.fi/

Leiðbeiningar http://www.saarella.fi/manual.pdf